Fyrirvari: Ráðfærðu þig alltaf við lækni eða sjúkraþjálfara áður en þú byrjar að æfa. Hlustaðu á líkamann þinn meðan á æfingum stendur, og hættu strax ef þú finnur fyrir óþægindum eða sársauka.
Öræfingaplanið samanstendur af 28 mismunandi æfingum og er æfingaplanið fjórskipt eða þannig að það er rúllað á milli efri líkama æfingu, neðri líkama æfingu, æfingu fyrir allan líkamann og þol og core æfingu. Allar æfingarnar taka aðeins 16 mínútur frá upphafi til enda.
Tæki/tól fyrir æfinguna: Eitt þyngra handlóð, mini bands teygju, sliders/handklæði/jóga bolti
Um æfinguna: Byrjaðu á 2 mín í upphitun og farðu 1x í gegnum æfingarnar og ef þú hefur auka tíma þá oftar í gegnum síðustu tvær eða notar tímann til að teygja aðeins. Næst tekur við æfingin sjálf og ef þú stilltir Interval Timerinn þá tekur við það sem kallast EMOM æfing eða every minute on the minute þar sem þú skiptir um æfingu á 1 mín fresti en ert að vinna allan tímann. Smelltu á æfinguna til að sjá hana. Þetta eru 11 æfingar í heildina. Að því loknu er 2 mín auka finisher sem er svipaður og í síðustu öræfingu en aðrar endurtekningar og er markmiðið að klára á innan við 2 mín. Svo tekur við amk 1 mín af teygjum eða þann tíma sem þú getur gefið þér í þær.
Ef það stendur t.d. 5/5x þá á ég við að klára 5 fyrst á hægri (H) og svo 5 á vinstri (V). Ef það stendur t.d. 6x og þetta er æfing sem reynir á bæði H og V þá er þetta heildar fjöldi endurtekninga og þú skiptist á H og V.
Interval timer: Ef þú vilt ekki taka þessa æfingu live með mér skaltu stilla Interval timer app á; Warm up: 2 mín, High: 60 sek, Low: 0 sek og Set: 11. Cool down: 2 mín (finisherinn)
Eða smelltu hér: https://youtu.be/cVu5Tdglp6o
2 mín upphitun
Æfingin - 11 mín
1x í gegn:
60 sek há hné
60 sek air squats eða hnébeygjuhopp
60 sek mountain climbers
60 sek hliðarskref með teygju (mini bands teygja)
60 sek abduction með teygju (mini bands teygja)
60 sek afturstig H/V til skiptis (eitt eða tvö handlóð)
60 sek hamstring curl á handklæði eða á bolta + mjaðmalyfta (handklæði/sliders)
60 sek súmó dú (eitt handlóð eða líkamsþyngd)
60 sek snatch á H/V til skiptis (eitt handlóð)
60 sek romanian á H/V til skiptis (eitt eða tvö handlóð)
60 sek afturstig snatch á H/V til skiptis (eitt handlóð)
Finisher - 2 mín
2 mín til að klára
1 mín teygjur/niðurlag
5x köttur kú
AUKA teygjur ef þú hefur tíma og líkaminn kallar á
Láttu mig vita í comment ef þér fannst þessi færsla hjálpleg! Og endilega deildu henni með öðrum svo hún geti nýst fleirum.
Comments