top of page

Örhugleiðsla 1 - Hvernig líður mér?

Writer's picture: SigSig

Fyrirvari: Ráðfærðu þig alltaf við sálfræðing, geðlækni eða annan heilbrigðisstarfsmann áður en þú byrjar á andlegri vinnu eins og hugleiðslu, sérstaklega ef þú átt við andleg eða líkamleg heilsufarsvandaað stríða (t.d. kvíða, þunglyndi, áfallastreitu eða aðra geðsjúkdóma). Hlustaðu á líðan þína meðan á hugleiðslunni stendur og hættu strax ef þú finnur fyrir einhverskonar óþægindum. Hugleiðslan fer fram á eigin ábyrgð.


Örhugleiðsluplanið samanstendur af sex mismunandi hugleiðslum. Þú ræður algjörlega hvaða hugleiðslu þú byrjar á. Hugleiðsla 6 er framhald af hugleiðslu 5 en þú þarft aðeins að stunda hugleiðslu 5 einu sinni og endurtaka hana síðan eftir þörfum, t.d. 1x á ári.


Hvaðan eru þessar hugleiðslur? 7 mín hugleiðslupakkinn varð til eftir að ég varð 2ja barna mamma 2019 og fann hvað ég hafði engan tíma fyrir mig sjálfa. Ég var í eigin rekstri og með fullt af konum í þjálfun. Mér fannst svo mikilvægt að gefa frá mér góða orku, bæði til þessara kvenna og barnanna minna. Ég fór því að hugleiða og heyrði eitt sinn að prófa að stilla timer á 5 mín og loka augunum. Ég ákvað að prófa það og við það fór ég að spyrja mig spurninga. Þetta þróaðist síðan í þó nokkrar spurningar og varð síðan til þess að ég tengdist mér á hátt, mér leið vel og stillti mig á góða braut. Þegar ég var að deila þessu á samfélagsmiðlum varð svo mikill áhugi að ég ákvað að útbúa hugleiðslupakka sem innihélt þessar hugleiðslur. Allt með það markmið að tengja þig betur við sjálfan þig. Reynslan hefur sýnt að flestir finni áhrif 7-12 dögum eftir að þau byrja að hugleiða daglega.


Hvernig eru þessar hugleiðslur? Hver hugleiðsla er aðeins 7 mín og er eins uppsett. Þú byrjar á að koma þér vel fyrir í liggjandi stöðu og með lokuð augun. Ég byrja á að láta þig gera sérstaka öndun sem er ætluð að koma þér inn í hugleiðsluna og slaka örlítið á. Öndunin er þannig að þú andar að þér og tel ég upp að fjórum, síðan leggur þú tungu upp í góm og heldur inni andanum í 4 sek og síðan andar þú hægar frá þér í samtals 8 sek og slakar á öllu. Næst læt ég þig spyrja þig spurningu. Þú ætlar að gefa huganum þínum frjálst flæði og sjá hvað er á bakvið hana. Þegar 7 mín eru búnar þá heyrist gong hljóð og þá kem ég aftur inn og læt þig taka sérstakan andardrátt og síðan heldur þú áfram með daginn þinn. Suma daga verður þú allan tímann að eiga samræður við sjálfan þig, suma daga ferðu að hugsa um eitthvað allt annað en með æfingunni nærðu að einblína á spurninguna í hugleiðslunni og nærð að svara henni. Þegar þú nærð að svara henni er afleiðingin yfirleitt þægileg, þú getur þá leyft þér að slaka á og liggja með sjálfri þér. Vertu með blað og penna hjá þér þannig að þú getir skrifað niður það sem kemur upp og þú vilt muna. Út frá reynslu margra hefur það tekið um 7-12 daga að finna áhrif af þessum hugleiðslum.


Um þessa hugleiðslu: Þessari æfingu er ætlað að auka meðvitund við líðan þína og styrkja það sem er gott. Í hugleiðslunni ætlar þú að spyrja þig: „Hvernig líður mér, af hverju og hvað get ég gert í því“. Ef þér líður vel reyndu að komast að því af hverju þér líður vel og hvað þú getur gert til að halda því áfram. Til dæmis „Mér líður vel af því ég náði að hreyfa mig í morgun og það sem ég get gert í því er að halda áfram að ná að hreyfa mig á morgnanna eða halda áfram að einblína á það sem ég geri vel." Ef þér líður illa reyndu að komast að því af hverju þér líður illa og hvað þú getur gert í stöðunni. Til dæmis „Mér líður illa af því að ég á eftir að gera svo margt og það sem ég get gert í því er að skrifa niður allt sem ég á eftir að gera og byrja á einhverju einu og pæla ekki í hinu fyrr en það er búið“. Þér gæti síðan líka liðið hlutlaust eða bara hvorki vel né illa, kannaðu af hverju og hvað þú getur gert í því. Til dæmis mér líður hvorki vel né illa af því það hefur ekkert sérstakt komið upp á og ég hef ekki pælt í líðan minni með þessum hætti áður, ég get orðið meðvitaðri um mig til þess að átta mig betur á mér. Síðan þegar þú ert að eiga þessar samræður við sjálfan þig gæti allt í einu komið upp einhver líðan og þá kannar þú hvað er þarna á bakvið, af hverju og hvort þú getir eitthvað gert í því. 


Það gæti verið gott að vera með blað og skriffæri hjá þér ef þú skyldir komast að einhverju í hugleiðslunni sem þú vilt geta minnt þig á. Ef þú ert ekki með blað og skriffæri gætir þú skrifað punkta í símanum.

Láttu mig vita í comment hvernig þér fannst þessi hugleiðsla! Og endilega deildu henni með öðrum svo hún geti nýst fleirum.

コメント


  • Youtube

Life with Sig

© 2024 by Life with Sig

Contact

Connect with Sig

bottom of page