top of page

Örhugleiðsla 3 - Hvað er að halda aftur af mér að vera "besta" útgáfan af sjálfri mér?

Writer's picture: SigSig

Fyrirvari: Ráðfærðu þig alltaf við sálfræðing, geðlækni eða annan heilbrigðisstarfsmann áður en þú byrjar á andlegri vinnu eins og hugleiðslu, sérstaklega ef þú átt við andleg eða líkamleg heilsufarsvandaað stríða (t.d. kvíða, þunglyndi, áfallastreitu eða aðra geðsjúkdóma). Hlustaðu á líðan þína meðan á hugleiðslunni stendur og hættu strax ef þú finnur fyrir einhverskonar óþægindum. Hugleiðslan fer fram á eigin ábyrgð.


Örhugleiðsluplanið samanstendur af sex mismunandi hugleiðslum. Þú ræður algjörlega hvaða hugleiðslu þú byrjar á. Hugleiðsla 6 er framhald af hugleiðslu 5 en þú þarft aðeins að stunda hugleiðslu 5 einu sinni og endurtaka hana síðan eftir þörfum, t.d. 1x á ári.


Hvaðan eru þessar hugleiðslur? 7 mín hugleiðslupakkinn varð til eftir að ég varð 2ja barna mamma 2019 og fann hvað ég hafði engan tíma fyrir mig sjálfa. Ég var í eigin rekstri og með fullt af konum í þjálfun. Mér fannst svo mikilvægt að gefa frá mér góða orku, bæði til þessara kvenna og barnanna minna. Ég fór því að hugleiða og heyrði eitt sinn að prófa að stilla timer á 5 mín og loka augunum. Ég ákvað að prófa það og við það fór ég að spyrja mig spurninga. Þetta þróaðist síðan í þó nokkrar spurningar og varð síðan til þess að ég tengdist mér á hátt, mér leið vel og stillti mig á góða braut. Þegar ég var að deila þessu á samfélagsmiðlum varð svo mikill áhugi að ég ákvað að útbúa hugleiðslupakka sem innihélt þessar hugleiðslur. Allt með það markmið að tengja þig betur við sjálfan þig. Reynslan hefur sýnt að flestir finni áhrif 7-12 dögum eftir að þau byrja að hugleiða daglega.


Hvernig eru þessar hugleiðslur? Hver hugleiðsla er aðeins 7 mín og er eins uppsett. Þú byrjar á að koma þér vel fyrir í liggjandi stöðu og með lokuð augun. Ég byrja á að láta þig gera sérstaka öndun sem er ætluð að koma þér inn í hugleiðsluna og slaka örlítið á. Öndunin er þannig að þú andar að þér og tel ég upp að fjórum, síðan leggur þú tungu upp í góm og heldur inni andanum í 4 sek og síðan andar þú hægar frá þér í samtals 8 sek og slakar á öllu. Næst læt ég þig spyrja þig spurningu. Þú ætlar að gefa huganum þínum frjálst flæði og sjá hvað er á bakvið hana. Þegar 7 mín eru búnar þá heyrist gong hljóð og þá kem ég aftur inn og læt þig taka sérstakan andardrátt og síðan heldur þú áfram með daginn þinn. Suma daga verður þú allan tímann að eiga samræður við sjálfan þig, suma daga ferðu að hugsa um eitthvað allt annað en með æfingunni nærðu að einblína á spurninguna í hugleiðslunni og nærð að svara henni. Þegar þú nærð að svara henni er afleiðingin yfirleitt þægileg, þú getur þá leyft þér að slaka á og liggja með sjálfri þér. Vertu með blað og penna hjá þér þannig að þú getir skrifað niður það sem kemur upp og þú vilt muna. Út frá reynslu margra hefur það tekið um 7-12 daga að finna áhrif af þessum hugleiðslum.


Um þessa hugleiðslu:  Þessi hugleiðsla er ætluð að styrkja þig og finna hvort eitthvað í þínu fari er að halda aftur af þér, eitthvað sem er að koma í veg fyrir að þú verðir meira ÞÚ. Spurðu þig „Hvað er að halda aftur af mér að vera besta útgáfan af sjálfum mér og hvað get ég gert í því“. Til dæmis gæti það verið; ég er alltaf að segja við sjálfan mig að ég er löt/latur sem er að draga mig niður og láta mig ekki nenna neinu. Það sem ég get gert í því er að þegar ég hugsa ég er löt/latur að hugsa á móti, nei nú hættir þú, það er ekki að hjálpa þér neitt að hugsa að þú sért löt/latur þannig hættum því, hættum að pæla í því og farðu að framkvæma. Það sem þú ætlar að gera er að eiga samtal við sjálfan þig og komast að því hvað er að koma í veg fyrir að þú sért besta útgáfan af þér. Það gæti verið HVAÐ SEM ER og þú getur komist að mismunandi hlutum í hvert skipti sem þú spyrð þig að þessu í hugleiðslu. Ef þér dettur ekkert í hug skaltu eiga samtal við sjálfan þig af hverju það gæti verið, af hverju þú gætir hugsanlega verið ótengd/ur við sjálfan þig og æfa þig í því smám saman að þekkja betur inn á þig. Og besta útgáfan af þér er sú útgáfa sem er eins og umhyggusamasta mamma sem þú gætir ímyndað þér, einhver sem sýnir þér mildi en líka einhver sem dregur þig áfram, einhver sem kemur þér niður á jörðina og einhver sem hífur þig upp úr drullunni. Sú útgáfa sem þú ÞARFT í dag og hverju sinni það er raunveruleg besta útgáfa af þér.


Það gæti verið gott að vera með blað og skriffæri hjá þér ef þú skyldir komast að einhverju í hugleiðslunni sem þú vilt geta minnt þig á. Ef þú ert ekki með blað og skriffæri gætir þú skrifað punkta í símanum.

Láttu mig vita í comment hvernig þér fannst þessi hugleiðsla! Og endilega deildu henni með öðrum svo hún geti nýst fleirum.

Comments


  • Youtube

Life with Sig

© 2024 by Life with Sig

Contact

Connect with Sig

bottom of page