top of page

Örhugleiðsla 6 - Eiginleikar mínir

Writer's picture: SigSig

Fyrirvari: Ráðfærðu þig alltaf við sálfræðing, geðlækni eða annan heilbrigðisstarfsmann áður en þú byrjar á andlegri vinnu eins og hugleiðslu, sérstaklega ef þú átt við andleg eða líkamleg heilsufarsvandaað stríða (t.d. kvíða, þunglyndi, áfallastreitu eða aðra geðsjúkdóma). Hlustaðu á líðan þína meðan á hugleiðslunni stendur og hættu strax ef þú finnur fyrir einhverskonar óþægindum. Hugleiðslan fer fram á eigin ábyrgð.


Örhugleiðsluplanið samanstendur af sex mismunandi hugleiðslum. Þú ræður algjörlega hvaða hugleiðslu þú byrjar á. Hugleiðsla 6 er framhald af hugleiðslu 5 en þú þarft aðeins að stunda hugleiðslu 5 einu sinni og endurtaka hana síðan eftir þörfum, t.d. 1x á ári.

Hvaðan eru þessar hugleiðslur? 7 mín hugleiðslupakkinn varð til eftir að ég varð 2ja barna mamma 2019 og fann hvað ég hafði engan tíma fyrir mig sjálfa. Ég var í eigin rekstri og með fullt af konum í þjálfun. Mér fannst svo mikilvægt að gefa frá mér góða orku, bæði til þessara kvenna og barnanna minna. Ég fór því að hugleiða og heyrði eitt sinn að prófa að stilla timer á 5 mín og loka augunum. Ég ákvað að prófa það og við það fór ég að spyrja mig spurninga. Þetta þróaðist síðan í þó nokkrar spurningar og varð síðan til þess að ég tengdist mér á hátt, mér leið vel og stillti mig á góða braut. Þegar ég var að deila þessu á samfélagsmiðlum varð svo mikill áhugi að ég ákvað að útbúa hugleiðslupakka sem innihélt þessar hugleiðslur. Allt með það markmið að tengja þig betur við sjálfan þig. Reynslan hefur sýnt að flestir finni áhrif 7-12 dögum eftir að þau byrja að hugleiða daglega.


Hvernig eru þessar hugleiðslur? Hver hugleiðsla er aðeins 7 mín og er eins uppsett. Þú byrjar á að koma þér vel fyrir í liggjandi stöðu og með lokuð augun. Ég byrja á að láta þig gera sérstaka öndun sem er ætluð að koma þér inn í hugleiðsluna og slaka örlítið á. Öndunin er þannig að þú andar að þér og tel ég upp að fjórum, síðan leggur þú tungu upp í góm og heldur inni andanum í 4 sek og síðan andar þú hægar frá þér í samtals 8 sek og slakar á öllu. Næst læt ég þig spyrja þig spurningu. Þú ætlar að gefa huganum þínum frjálst flæði og sjá hvað er á bakvið hana. Þegar 7 mín eru búnar þá heyrist gong hljóð og þá kem ég aftur inn og læt þig taka sérstakan andardrátt og síðan heldur þú áfram með daginn þinn. Suma daga verður þú allan tímann að eiga samræður við sjálfan þig, suma daga ferðu að hugsa um eitthvað allt annað en með æfingunni nærðu að einblína á spurninguna í hugleiðslunni og nærð að svara henni. Þegar þú nærð að svara henni er afleiðingin yfirleitt þægileg, þú getur þá leyft þér að slaka á og liggja með sjálfri þér. Vertu með blað og penna hjá þér þannig að þú getir skrifað niður það sem kemur upp og þú vilt muna. Út frá reynslu margra hefur það tekið um 7-12 daga að finna áhrif af þessum hugleiðslum.


Um þessa hugleiðslu:  Þessari hugleiðslu er ætlað að styrkja þig og mata þig af þeim eiginleikum sem þú raunverulega býrð yfir en ert ekki endilega að minna þig á eða einblína á. Í hugleiðslunni ætlar þú að endurtaka eiginleika sem þú lítur upp til hjá öðru fólki sem þú komst að í hugleiðslunni (Hvað lít ég upp til í fari annarra?) og segja ÉG ER á undan því. Þannig þú segir það aftur og aftur og aftur í gegnum hugleiðsluna. 

Ef eiginleiki var til dæmis umhyggjusöm/samur myndir þú segja ÉG er umhyggjusöm/samur, ÉG er umhyggjusöm/samur, ÉG er umhyggjusöm/samur, ÉG er umhyggjusöm/samur mér er umhugað um annað fólk ég sýni því góðvild og samkennd og er góð/ur við alla í kringum mig..... og síðan taka fyrir næsta eiginleika. Eiga samtal út frá þessum eiginleikum. Ef þú átt erfitt með að segja ÉG ER því það hljómar of "kjánalega" eða ótrúverðugt prófaðu að segja "ÉG LEYFI MÉR AÐ FINNA AÐ ÉG ER...."

ÞÚ býrð yfir þessum eiginleikum en þarft stundum að finna þá hjá þér og síðan að viðhalda þeim með því að minna þig reglulega á þá. Það er mjög líklegt að þú trúir því ekki núna en með tímanum og æfingunni munt þú trúa því. 

Láttu mig vita í comment hvernig þér fannst þessi hugleiðsla! Og endilega deildu henni með öðrum svo hún geti nýst fleirum.

Yorumlar


  • Youtube

Life with Sig

© 2024 by Life with Sig

Contact

Connect with Sig

bottom of page