top of page
Writer's pictureSig

Coreæfing 6: Fótalyftur, dead bug, clam, bakfettur (stig 2)

Updated: Nov 15

Fyrirvari: Ráðfærðu þig alltaf við lækni eða sjúkraþjálfara áður en þú byrjar að æfa. Hlustaðu á líkamann þinn meðan á æfingum stendur, og hættu strax ef þú finnur fyrir óþægindum eða sársauka.


Þetta er önnur æfingin í stig 2 á core æfingaplaninu. Ef þú varst ekki búin með stig 1 skaltu byrja á að skoða þessar æfingar hér: core æfing 1, core æfing 2, core æfing 3 og core æfing 4.

Þessi æfing getur hentað hverjum sem er sem vill vinna með grunn core þjálfun. Áður en þú byrjar á stig 2 í core æfingapakkanum skaltu vera búin að fylgja stig 1 (þekkja þindaröndun, tengingu við grindarbotn og djúpvöðva kviðs og getu til að virkja og slaka á þessum vöðvahópum).


Þessi æfing er á tíma þar sem hver æfing er framkvæmd í 60 sek og förum við tvo hringi af æfingunum.


Tæki/tól fyrir æfinguna: Engin


Eða smelltu hér: https://youtu.be/DlSYX4kkdYU


  1. Liggjandi fótalyfta beinar fætur H3x/V3x til skiptis (viljum æfa "krosstenginguna)

  2. Dead bug H2x/V2x til skiptis

  3. Hliðarclam H beint yfir í liggjandi hliðarspark á innanverð læri V

  4. Hliðarclam V beint yfir í liggjandi hliðarspark á innanverð læri H

  5. Bakfettur

  6. Teygjur: Barnið teygja fram, innanverð læri + hryggvinda, mjaðmasvæði


Láttu mig vita í comment ef þér fannst þessi færsla hjálpleg! Og endilega deildu henni með öðrum svo hún geti nýst fleirum.

1 view

Recent Posts

See All

Comments


bottom of page