Fyrirvari: Ráðfærðu þig alltaf við lækni eða sjúkraþjálfara áður en þú byrjar að æfa. Hlustaðu á líkamann þinn meðan á æfingum stendur, og hættu strax ef þú finnur fyrir óþægindum eða sársauka.
Þetta er þriðja æfingin í stig 2 á core æfingaplaninu. Ef þú varst ekki búin með stig 1 skaltu byrja á að skoða þessar æfingar hér: core æfing 1, core æfing 2, core æfing 3 og core æfing 4.
Þessi æfing getur hentað hverjum sem er sem vill vinna með grunn core þjálfun. Áður en þú byrjar á stig 2 í core æfingapakkanum skaltu vera búin að fylgja stig 1 (þekkja þindaröndun, tengingu við grindarbotn og djúpvöðva kviðs og getu til að virkja og slaka á þessum vöðvahópum).
Þessi æfing er á tíma þar sem hver æfing er framkvæmd í 40 sek og endurteknar þannig að við förum tvo hringi.
Tæki/tól fyrir æfinguna: Eitt handlóð, valkvæmt: mini bands teygja
Eða smelltu hér: https://www.youtube.com/watch?v=HO-jFp5_J9A
Hliðarplanki fram og aftur með fót svo kreppa H
Hliðarplanki fram og aftur með fót svo kreppa V
Planki yfir í A snerta tær til skiptis
Mjaðmalyfta "sundur saman"
Mjaðmalyfta á H svo V
Borðið draga í gegn (eitt handlóð)
Standandi fótalyftur (eitt handlóð, valkvæmt: mini bands teygja)
Around the world (eitt handlóð)
Teygjur: Köttur kú, barnið teygja fram, innanverða lærvöðva, mjaðmasvæðið, teygja á síðu
Láttu mig vita í comment ef þér fannst þessi færsla hjálpleg! Og endilega deildu henni með öðrum svo hún geti nýst fleirum.
Comments