top of page

Jóga nidra dáleiðsla hugleiðsla 2 - Orkustöðvar

Writer's picture: SigSig

Fyrirvari: Ráðfærðu þig alltaf við sálfræðing, geðlækni eða annan heilbrigðisstarfsmann áður en þú byrjar á andlegri vinnu eins og hugleiðslu, sérstaklega ef þú átt við andleg eða líkamleg heilsufarsvandaað stríða (t.d. kvíða, þunglyndi, áfallastreitu eða aðra geðsjúkdóma). Hlustaðu á líðan þína meðan á hugleiðslunni stendur og hættu strax ef þú finnur fyrir einhverskonar óþægindum. Hugleiðslan fer fram á eigin ábyrgð.


Jóga nidra dáleiðsluplanið samanstendur af þremur hugleiðslum. Það þarf ekki að fylgja þeim í neinni sérstakri röð, velja þá sem talar mest til þín í dag.


Hvaðan eru þessar hugleiðslur? Jóga nidra dáleiðsla hugleiðslur urðu til eftir að ég fór í kulnun 2022 og bætti við mig jóga nidra kennararéttindum og klínískri dáleiðslu. Ég er að blanda því sem ég lærði í jóga nidra náminu og grunnnámi dáleiðslu og er útkoman slökun og ákveðin orku hreinsun fyrir líkamann og uppbygging fyrir undirvitundina.


Hugleiðslurna eru lengri og eru á bilinu 26-33 mín og byggjast þær á jóga nidra og dáleiðsluaðferðum. Það er margt sem ég get sagt um jóga nidra og dáleiðslu en því meiri skilning sem þú hefur á aðferðinni því meira munt þú fá út úr henni.

Í "stuttu" máli að þá er þetta liggjandi leidd hugleiðsla þar sem við slökum á öllum líkamanum og byggjum okkur síðan upp andlega með trúverðugum og jákvæðum staðhæfingum. Ég sé um að koma þér í þetta hugarástand og það eina sem þú þarft að gera er að liggja og hlusta á. Markmiðið er að komast á milli svefns og vöku og gerist það með æfingunni ef það gerist ekki strax. Tilfinningin er eins og að vera sofandi en þú heyrir og ert oftast ef ekki alltaf vör um þig. Það er eðlilegt að detta inn og út og er líka algengt að sofna en markmiðið er að halda sér vakandi í djúpri slökun. 


Það sem jóga nidra aðferðafræðin gerir er að hún slakar á líkamanum og huganum og kemur þér þannig frá líkamanum og í bein tengsl við þig sjálfa, það sem ég kalla “innra sjálfið”. Því oftar sem þú stundar jóga nidra því tengdari verður þú og verður afleiðingin sú að þú bregst sjaldnar við ósjálfrátt heldur er eins og þú fáir tækifæri til að bakka og svo ákveða hvernig þú bregst við. Þegar þetta gerist skaltu nýta tækifærið og velja vel hvaða fræi þú ætlar að planta. Þetta mun geta umbreytt þér og þínum venjum algjörlega. Það er sagt að jóga nidra vinni úr áföllum án þess að við þurfum að tala um það upphátt og er þess vegna ástæðan fyrir því að sumir fá höfuðverk eða verki eftir jóga nidra. Þú skalt vita að þá er einhver óskiljanleg og óútskýranleg úrvinnsla að eiga sér stað og það sem er komið upp á yfirborðið er að koma til að fara. Best að lýsa þessu sem læk sem er stútfullur af steinum þannig að vatnið lekur hægt í gegnum lækinn. Með hverju jóga nidra að þá fer einn og einn steinn og þá flæðir vatnið betur. Þú getur litið á áföllin þín og það sem þú hefur ómeðvitað og meðvitað tekið til þín í gegnum lífið sem þessa steina og með hverri hugleiðslu að þá losnar um einn og einn stein þannig að orkan þín flæðir betur. Það er eðilegt að vera orkumikil eftir jóga nidra og það er eðlilegt að vera alveg búin á því. Líkaminn vinnur úr að koma jafnvægi á orkunni á sínum hraða.


Það sem dáleiðsluaðferðin gerir er að ég nota hana til að dýpka enn betur og koma þér enn betur í þetta hugarástand sem sumir vilja kalla undirvitund, aðrir vilja kalla í beinum tengslum við þig sjálfa, sálina þína, rótina þína, þitt innra sjálf. En þegar við komumst inn fyrir múr vitundar þá gefum við varnarkerfinu og taugakerfinu okkar hvíld. Með tímanum höfum við áhrif á framheilann, amygdala og hyppocampus í heila. Þannig að útkoman verður yfirvegaðri og kyrrlátari útgáfa af okkur. Það sem ég nota einnig við dáleiðsluaðferðina eru jákvæðar staðhæfingar og setningar og síðan vakningin.


Um þessa hugleiðslu:   Í þessari upptöku erum við að vinna með að hreinsa orkuna í líkamanum, eða það sem kallast orkustöðvarnar. 


Upptakan byrjar á því að ég hvet þig til þess að teygja á líkamanum áður en við byrjum en það er til þess að tengja okkur betur við líkamann, oft kemst maður "úr huganum" ef maður fer að einblína á líkamann. Síðan að koma þér fyrir í liggjandi stöðu eins og í fyrri slökun. Í þessari upptöku notumst við aðra möntru og er mantran "ég leyfi mér að sleppa því sem þjónar mér ekki lengur". Það er magnað hvað þessi mantra er öflug þegar hún fer að verða þitt innra sjálfstal - sem möntrur eru. Þær eru ekkert annað en innra sjálfstal en með því að planta þeim meðvitað erum við ólíklegri til þess að vera með einhverja ómeðvitaða möntru sem dregur okkur niður. Þessi meðvitaða mantra hífir okkur upp og yfirgnæfir þessa "ómeðvituðu möntru".


Ég fer með þig í gegnum öndun til að tengjast þínu innra sjálfi betur, koma þér dýpra í þinn hugarheim og slaka á taugakerfinu en öndunin er þannig að við dýpkum inn og út öndun og síðan teljum við síðustu 5 andadrætti þannig að við hugsun "5 ég anda inn, 5 ég anda út" og svo framvegis.


Síðan kemur að því að hreinsa orkustöðvarnar og leiði ég þig í gegnum þessar 7 orkustöðvar. Þær liggja meðfram hryggnum frá rófubeini og upp að hvirfli og hafa þær allar sinn "tilgang" og allar sitt "ljós" eða þannig að ég bið þig að ímynda þér ákveðinn lit lýsast upp. Það getur tekið smá æfingu að finna þetta og ef þú finnur ekki ljós lýsast upp skaltu einblína á það svæði sem er verið að tala um. 


Þegar við höfum hreinsað allar orkustöðvarnar og sleppt því sem þjónar okkur ekki lengur að þá bið ég þig að tengjast þér enn betur og hugsa frá þriðja auganu og um 7 cm inn á við og gef þér dálitla þögn, um 30 sek, til þess að liggja ein/nn með sjálfri/um þér. Síðan kemur að vakningunni og notast ég við sömu vakningaraðferð þar sem ég tel frá 1 og upp í 10 og hækka róminn með hverri tölu til að tryggja að þú komir úr þessu hugarástandi og ert alveg vöknuð/aður.


Ef þú ert að fara í þessa hugleiðslu aftur eftir hlé þá er mjög eðlilegt að það taki nokkur skipti að koma þér inn í þessa djúpslökun. Það getur verið að þú komir úr hugleiðslunni orkumikil og það getur líka verið að þú komir úr henni með verk eða búin á því. Ef þú ert búin á því eða með verk mundu að það sem er komið upp á yfirborðið er komið til að fara, það er að hreinsast, við erum að taka stein úr læknum svo lækurinn geti flætt betur. Það getur líka verið að það komi upp eitthvað sem hefur verið að halda aftur af þér eða hefur setið í þér, ef það gerist gæti verið gott að vinna áfram með það með sálfræðing eða öðrum meðferðaraðila.

Láttu mig vita í comment hvernig þér fannst þessi hugleiðsla! Og endilega deildu henni með öðrum svo hún geti nýst fleirum.

Comments


  • Youtube

Life with Sig

© 2024 by Life with Sig

Contact

Connect with Sig

bottom of page