Fyrirvari: Ráðfærðu þig alltaf við sálfræðing, geðlækni eða annan heilbrigðisstarfsmann áður en þú byrjar á andlegri vinnu eins og hugleiðslu, sérstaklega ef þú átt við andleg eða líkamleg heilsufarsvandaað stríða (t.d. kvíða, þunglyndi, áfallastreitu eða aðra geðsjúkdóma). Hlustaðu á líðan þína meðan á hugleiðslunni stendur og hættu strax ef þú finnur fyrir einhverskonar óþægindum. Hugleiðslan fer fram á eigin ábyrgð.
Jóga nidra dáleiðsluplanið samanstendur af þremur hugleiðslum. Það þarf ekki að fylgja þeim í neinni sérstakri röð, velja þá sem talar mest til þín í dag.
Hvaðan eru þessar hugleiðslur? Jóga nidra dáleiðsla hugleiðslur urðu til eftir að ég fór í kulnun 2022 og bætti við mig jóga nidra kennararéttindum og klínískri dáleiðslu. Ég er að blanda því sem ég lærði í jóga nidra náminu og grunnnámi dáleiðslu og er útkoman slökun og ákveðin orku hreinsun fyrir líkamann og uppbygging fyrir undirvitundina.
Hugleiðslurna eru lengri og eru á bilinu 26-33 mín og byggjast þær á jóga nidra og dáleiðsluaðferðum. Það er margt sem ég get sagt um jóga nidra og dáleiðslu en því meiri skilning sem þú hefur á aðferðinni því meira munt þú fá út úr henni.
Í "stuttu" máli að þá er þetta liggjandi leidd hugleiðsla þar sem við slökum á öllum líkamanum og byggjum okkur síðan upp andlega með trúverðugum og jákvæðum staðhæfingum. Ég sé um að koma þér í þetta hugarástand og það eina sem þú þarft að gera er að liggja og hlusta á. Markmiðið er að komast á milli svefns og vöku og gerist það með æfingunni ef það gerist ekki strax. Tilfinningin er eins og að vera sofandi en þú heyrir og ert oftast ef ekki alltaf vör um þig. Það er eðlilegt að detta inn og út og er líka algengt að sofna en markmiðið er að halda sér vakandi í djúpri slökun.
Það sem jóga nidra aðferðafræðin gerir er að hún slakar á líkamanum og huganum og kemur þér þannig frá líkamanum og í bein tengsl við þig sjálfa, það sem ég kalla “innra sjálfið”. Því oftar sem þú stundar jóga nidra því tengdari verður þú og verður afleiðingin sú að þú bregst sjaldnar við ósjálfrátt heldur er eins og þú fáir tækifæri til að bakka og svo ákveða hvernig þú bregst við. Þegar þetta gerist skaltu nýta tækifærið og velja vel hvaða fræi þú ætlar að planta. Þetta mun geta umbreytt þér og þínum venjum algjörlega. Það er sagt að jóga nidra vinni úr áföllum án þess að við þurfum að tala um það upphátt og er þess vegna ástæðan fyrir því að sumir fá höfuðverk eða verki eftir jóga nidra. Þú skalt vita að þá er einhver óskiljanleg og óútskýranleg úrvinnsla að eiga sér stað og það sem er komið upp á yfirborðið er að koma til að fara. Best að lýsa þessu sem læk sem er stútfullur af steinum þannig að vatnið lekur hægt í gegnum lækinn. Með hverju jóga nidra að þá fer einn og einn steinn og þá flæðir vatnið betur. Þú getur litið á áföllin þín og það sem þú hefur ómeðvitað og meðvitað tekið til þín í gegnum lífið sem þessa steina og með hverri hugleiðslu að þá losnar um einn og einn stein þannig að orkan þín flæðir betur. Það er eðilegt að vera orkumikil eftir jóga nidra og það er eðlilegt að vera alveg búin á því. Líkaminn vinnur úr að koma jafnvægi á orkunni á sínum hraða.
Það sem dáleiðsluaðferðin gerir er að ég nota hana til að dýpka enn betur og koma þér enn betur í þetta hugarástand sem sumir vilja kalla undirvitund, aðrir vilja kalla í beinum tengslum við þig sjálfa, sálina þína, rótina þína, þitt innra sjálf. En þegar við komumst inn fyrir múr vitundar þá gefum við varnarkerfinu og taugakerfinu okkar hvíld. Með tímanum höfum við áhrif á framheilann, amygdala og hyppocampus í heila. Þannig að útkoman verður yfirvegaðri og kyrrlátari útgáfa af okkur. Það sem ég nota einnig við dáleiðsluaðferðina eru jákvæðar staðhæfingar og setningar og síðan vakningin.
Um þessa hugleiðslu: Í þessari upptöku kemur þú þér fyrir í liggjandi stöðu, þú segir "já" upphátt við að þú sért tilbúin að fara í djúpt slökunarástand. Ég leiði þig í gegnum þetta og þú hlustar, fylgir og nýtur. Mantran sem við ætlum að vinna með er "Ég leyfi mér að sjá og finna að ég er það dýrmætasta sem ég á".
Við munum spenna líkamann í þessari upptöku til þess að slaka betur á taugakerfinu og við munum fara í gegnum öndun sem kallast So-Hum öndun. En So-Hum þýðir Ég er-Ein heild. Þar sem ég tengi best við íslenskuna, frekar en "jóga-orðaforðann" nota ég orðin "Ég er" í stað So og "Ein heild" í stað Hum. Þetta þýðir það sama en mér finnst það mun áhrifameira að segja þetta á íslensku. Öndunin er þannig að við hugsum að við öndum inn frá þriðja auganu (punkt á milli augabrúna) og að öndunin fari niður eftir hryggjarsúlu (í gegnum allar orkustöðvar) og alveg niður að rófubeini, öndum síðan frá okkur upp sömu leið og að þriðja auganum. Síðar bið ég þig að hugsa þegar þú andar inn að þú andar inn "ég er" niður eftir hryggjarsúlu og þegar þú andar frá að þú hugsar "ein heild" og upp eftir hryggjarsúlu að þriðja auganu. Ég mun leiða þig í gegnum þetta. En þessi öndun er ætluð að styrkja heildina sem býr innra með þér og þessa sjálfseflingu sem býr innra með þér.
Við förum síðan í slökun á öllum líkamanum og leiði ég þig næst í gegnum andstæð orð. En tilgangurinn með því að segja þessi andstæðu orð er að þú sjáir að þetta eru bara orð. Þú ætlar að leyfa þeim merkingum sem koma upp (ef þær koma upp) að gufa upp því þessi orð er ekkert annað en orð. Við erum ekki þessar tilfinningar sem við höfum bundið við þau, við getum tekið eftir að við höfum sett merkingu við orðin en að orðin, tilfinningarnar og hugsanirnar, þær koma og fara en við erum alltaf til staðar. Dæmi tengt þessu er úr jóga nidra náminu. Ef þú stendur á strönd og horfir út á haf þá veistu að ströndin og hafið verður alltaf þarna, það kemur ekki og fer. Þetta er samlíking við þig, þitt innra sjálf. Það kemur síðan bátur og hann siglir inn í sjónlínu og svo siglir hann útúr sjónlínu. Eina breytingin sem átti sér stað er að þessi bátur kom og fór. Það sama á við um þessi orð sem ég mun koma með, þetta er allt eitthvað sem kemur og fer, þetta er ekki hluti af þér eins og sjórinn og ströndin, heldur eru þessi orð báturinn sem kemur og fer. Með þessari æfingu erum við að reyna að fjarlægjast þessum merkingum sem við höfum gert að okkur og sjá að við erum bara við og punktur. Við erum bara ströndin og sjórinn, við erum bara þessi blái himinn, þessi tæri lækur en síðan höfum við tekið til okkar allskonar í gegnum lífið og "fest" hjá okkur og haldið að það séum við. Þannig með þessum hluta slökunarinnar erum við að æfa okkur í að sjá að þetta eru "bara orð" sem við höfum sett merkingu við, þetta erum ekki við. Við erum þessi grunnur, þetta sanna sjálf, þetta "source", þessi orka sem tekur eftir og er, við getum tekið til okkar allt sem við bindum merkingu við en við ætlum að taka eftir því að við erum að bæta því við okkur, þetta er ekki eitthvað sem við erum heldur eitthvað sem við ákveðum að gera að okkur.
Ég fer síðan með nokkrar staðhæfingar sem tengjast sjálfsumhyggju og að standa með þér. Síðan gef ég þér um 30 sekúndna þögn og svo kem ég þér úr jóga nidra dáleiðslunni með vakningu þar sem ég hækka róminn með hverri tölu til að tryggja að þú komir alveg tilbaka.
Ef þú ert að fara í þessa hugleiðslu aftur eftir hlé þá er mjög eðlilegt að það taki nokkur skipti að koma þér inn í þessa djúpslökun. Það getur verið að þú komir úr hugleiðslunni orkumikil og það getur líka verið að þú komir úr henni með verk eða búin á því. Ef þú ert búin á því eða með verk mundu að það sem er komið upp á yfirborðið er komið til að fara, það er að hreinsast, við erum að taka stein úr læknum svo lækurinn geti flætt betur. Það getur líka verið að það komi upp eitthvað sem hefur verið að halda aftur af þér eða hefur setið í þér, ef það gerist gæti verið gott að vinna áfram með það með sálfræðing eða öðrum meðferðaraðila.
Láttu mig vita í comment hvernig þér fannst þessi hugleiðsla! Og endilega deildu henni með öðrum svo hún geti nýst fleirum.
Comments