Fyrirvari: Ráðfærðu þig alltaf við lækni eða sjúkraþjálfara áður en þú byrjar að æfa. Hlustaðu á líkamann þinn meðan á æfingum stendur, og hættu strax ef þú finnur fyrir óþægindum eða sársauka.
Low Intensity æfingaplan samanstendur af 9 mismunandi æfingum þar sem æfingar 1-3 eru á svipuðu erfiðleikastigi, æfingar 4-7 á næsta erfiðleikastigi, og æfingar 8-9 eru erfiðastar, ætlaðar til að undirbúa þig fyrir meira krefjandi æfingar. Allar æfingarnar taka aðeins 14 mínútur frá upphafi til enda.
Tæki/tól fyrir æfinguna: Tvö handlóð, bekkur, pallur
Um æfinguna: Þessi æfing tekur á öllum líkamanum en hún er framkvæmd einungis í standandi stöðu og með smá uppstigi sem má skipta því út fyrir göngu á staðnum. Markmiðið með þessari æfingu er að verða meðvituð um líkamsstöðuna í æfingunum. Við byrjum 1 mín í upphitun, förum síðan í æfingu á tíma þar sem hver æfing er framkvæmd í 60 sek, förum samtals 2 hringi af þessum æfingum og endum síðar í 60 sek niðurlagi. Smelltu á play að neðan til að taka æfinguna með mér eða stilltu Interval Timer sjálf eins og ég mæli með hér að neðan og skoðaðu hverja æfingu með því að smella á hana.
Interval timer: Ef þú vilt ekki taka þessa æfingu live með mér skaltu stilla Interval timer app á; Warm up: 1 mín, set: 12, High: 1 mín, Low: 0 sek, Cool down: 1 mín.
Eða smelltu hér: https://www.youtube.com/watch?v=lKtmS3fWYPc
1 mín upphitun:
30 sek köttur kú í standandi stöðu
30 sek hryggvinda í standandi stöðu
12 mín æfing:
2x:
60 sek frambeygja/romanian (1-2 handlóð)
60 sek armkreppa + pressa (2 handlóð)
60 sek skiptiróður (rétta úr eftir þörfum - úthald í þessari stöðu) (1-2 handlóð)
60 sek niðurstig H/V til skiptis (2 handlóð, bekkur/pallur)
60 sek around the world um kvið (1-2 handlóð)
1+ mín niðurlag:
10+ sek rúlla öxlum
15+ sek teygja á framanverðum lærvöðvum
15+ sek teygja á aftanverðum lærvöðvum
10+ sek teygja á síðu
10+ sek teygja á brjóstkassa
Teyja lengur eða bæta við fleiri teygjum ef líkaminn kallar á
Láttu mig vita í comment ef þér fannst þessi færsla hjálpleg! Og endilega deildu henni með öðrum svo hún geti nýst fleirum.
Commenti