Fyrirvari: Ráðfærðu þig alltaf við lækni eða sjúkraþjálfara áður en þú byrjar að æfa. Hlustaðu á líkamann þinn meðan á æfingum stendur, og hættu strax ef þú finnur fyrir óþægindum eða sársauka.
Low Intensity æfingaplan samanstendur af 9 mismunandi æfingum þar sem æfingar 1-3 eru á svipuðu erfiðleikastigi, æfingar 4-7 á næsta erfiðleikastigi, og æfingar 8-9 eru erfiðastar, ætlaðar til að undirbúa þig fyrir meira krefjandi æfingar. Allar æfingarnar taka aðeins 14 mínútur frá upphafi til enda.
Tæki/tól fyrir æfinguna: Eitt handlóð, bekkur (eða stóll)
Um æfinguna: Þessi æfing tekur á öllum líkamanum og erum við mest standandi en líka sitjandi. Markmiðið með þessari æfingu er að verða meðvituð um líkamsstöðuna í æfingunum. Við byrjum 1 mín í upphitun, förum síðan í æfingu á tíma þar sem hver æfing er framkvæmd í 30 sek, förum samtals 3 hringi af þessum æfingum og endum síðar í 60 sek niðurlagi. Smelltu á play að neðan til að taka æfinguna með mér eða stilltu Interval Timer sjálf eins og ég mæli með hér að neðan og skoðaðu hverja æfingu með því að smella á hana.
Interval timer: Ef þú vilt ekki taka þessa æfingu live með mér skaltu stilla Interval timer app á; Warm up: 1 mín, set: 12, High: 30 sek, Low: 30 sek, Cool down: 1 mín.
Eða smelltu hér: https://www.youtube.com/watch?v=diNOI4pSX8Q&t=1s
1 mín upphitun:
30 sek köttur kú í standandi stöðu
30 sek hryggvinda í standandi stöðu
12 mín æfing:
3x:
30 sek hliðarbeygja H (1-2 handlóð)
30 sek hliðarbeygja V (1-2 handlóð)
30 sek SL armkreppa + pressa H (1 handlóð)
30 sek SL armkreppa + pressa V (1 handlóð)
30 sek hnébeygja á bekk (bekkur, 1-2 handlóð)
30 sek hnébeygja á bekk + pressa og fótalyftur H og V (bekkur, 1-2 handlóð)
30 sek romanian + róður H (1-2 handlóð, bekkur)
30 sek romanian + róður V (1-2 handlóð, bekkur)
1+ mín niðurlag:
10+ sek rúlla öxlum
15+ sek teygja á framanverðum lærvöðvum
15+ sek teygja á aftanverðum lærvöðvum
10+ sek teygja á síðu
10+ sek teygja á brjóstkassa
Teyja lengur eða bæta við fleiri teygjum ef líkaminn kallar á
Láttu mig vita í comment ef þér fannst þessi færsla hjálpleg! Og endilega deildu henni með öðrum svo hún geti nýst fleirum.
Comments