top of page

Low Intensity æfing 5: Efri líkaminn

Writer's picture: SigSig

Fyrirvari: Ráðfærðu þig alltaf við lækni eða sjúkraþjálfara áður en þú byrjar að æfa. Hlustaðu á líkamann þinn meðan á æfingum stendur, og hættu strax ef þú finnur fyrir óþægindum eða sársauka.


Low Intensity æfingaplan samanstendur af 9 mismunandi æfingum þar sem æfingar 1-3 eru á svipuðu erfiðleikastigi, æfingar 4-7 á næsta erfiðleikastigi, og æfingar 8-9 eru erfiðastar, ætlaðar til að undirbúa þig fyrir meira krefjandi æfingar. Allar æfingarnar taka aðeins 14 mínútur frá upphafi til enda.


Tæki/tól fyrir æfinguna: Tvö handlóð, bekkur, dýna


Um æfinguna: Þessi æfing leggur áherslu á efri líkamann. Markmiðið með henni er að verða meðvituð um líkamsstöðuna í æfingunum þá sérstaklega í efri hluta líkamans. Við byrjum 1 mín í upphitun, förum síðan í æfingu á tíma þar sem hver æfing er framkvæmd í 30 sek og förum við 3 hringi af æfingunum. Endum síðar í 60 sek niðurlagi. Smelltu á play að neðan til að taka æfinguna með mér eða stilltu Interval Timer sjálf eins og ég mæli með hér að neðan og skoðaðu hverja æfingu með því að smella á hana.


Interval timer: Ef þú vilt ekki taka þessa æfingu live með mér skaltu stilla Interval timer app á; Warm up: 1 mín, set: 12, High: 30 sek, Low: 30 sek, Cool down: 1 mín.



1 mín upphitun: 

12 mín æfing:

3x

  1. 30 sek armkreppa (2 handlóð)

  2. 30 sek hliðarlyfta (2 handlóð)

  3. 30 sek há hné/hlaup

  4. 30 sek róður standandi eða sitjandi (2 handlóð, bekkur)

  5. 30 sek planki + tappa axlir (bekkur, veggur, gólfið)

  6. 30 sek mountain climbers (bekkur eða gólfið)

  7. 30 sek armrétta (2 handlóð)

  8. 30 sek thrusters (2 handlóð)

1+ mín niðurlag: 

  1. 15 sek teygja brjóstkassa

  2. 15 sek teygja milli herðablaða

  3. 15 sek teygja á tvíhöfða

  4. 15 sek teygja á þríhöfða

  5. Teyja lengur eða bæta við fleiri teygjum ef líkaminn kallar á


Láttu mig vita í comment hvernig þér fannst þessi æfing! Og endilega deildu henni með öðrum svo hún geti nýst fleirum.

Comments


  • Youtube

Life with Sig

© 2024 by Life with Sig

Contact

Connect with Sig

bottom of page