top of page
Writer's pictureSig

Low Intensity æfing 8: Allur líkaminn

Updated: Nov 21

Fyrirvari: Ráðfærðu þig alltaf við lækni eða sjúkraþjálfara áður en þú byrjar að æfa. Hlustaðu á líkamann þinn meðan á æfingum stendur, og hættu strax ef þú finnur fyrir óþægindum eða sársauka.


Low Intensity æfingaplan samanstendur af 9 mismunandi æfingum þar sem æfingar 1-3 eru á svipuðu erfiðleikastigi, æfingar 4-7 á næsta erfiðleikastigi, og æfingar 8-9 eru erfiðastar, ætlaðar til að undirbúa þig fyrir meira krefjandi æfingar. Allar æfingarnar taka aðeins 14 mínútur frá upphafi til enda.


Tæki/tól fyrir æfinguna: Tvö handlóð, bekkur, dýna


Um æfinguna: Þessi æfing leggur áherslu á allan líkamann. Markmiðið með henni er að bjóða líkamanum upp á aðeins meira krefjandi æfingu en áður og halda áfram að vera meðvituð um vöðvahópana sem við erum að vinna með í æfingunum. Við byrjum 1 mín í upphitun, förum síðan í æfingu á tíma þar sem hver æfing er framkvæmd í 60 sek og förum við 2 hringi af æfingunum. Endum síðar í 60 sek niðurlagi. Smelltu á play að neðan til að taka æfinguna með mér eða stilltu Interval Timer sjálf eins og ég mæli með hér að neðan og skoðaðu hverja æfingu með því að smella á hana.


Interval timer: Ef þú vilt ekki taka þessa æfingu live með mér skaltu stilla Interval timer app á; Warm up: 1 mín, set: 12, High: 1 mín, Low: 0 sek, Cool down: 1 mín.



1 mín upphitun: 

12 mín æfing:

2x

  1. 60 sek súmó rétt fram (2 handlóð)

  2. 60 sek romanian + upptog (2 handlóð)

  3. 60 sek thrusters (2 handlóð)

  4. 60 sek sveifla (2 handlóð)

  5. 60 sek uppstig eða kassahopp (bekkur, 2 handlóð)

  6. 60 sek borðið (1 handlóð)

1+ mín niðurlag:

  1. 15 sek köttur kú

  2. 15 sek barnið teygja fram

  3. 15 sek teygja á framanverðum lærvöðvum

  4. 15 sek teygja á aftanverðum lærvöðvum

  5. Teyja lengur eða bæta við fleiri teygjum ef líkaminn kallar á


Láttu mig vita í comment ef þér fannst þessi færsla hjálpleg! Og endilega deildu henni með öðrum svo hún geti nýst fleirum.

 




0 views

Recent Posts

See All

Commentaires


bottom of page