top of page

Meðgöngu grunnæfing 6 (áhersla á mjaðmasvæðið)

  • Writer: Sig
    Sig
  • Dec 14, 2024
  • 2 min read

Fyrirvari: Ráðfærðu þig alltaf við lækni eða sjúkraþjálfara áður en þú byrjar að æfa. Hlustaðu á líkamann þinn meðan á æfingum stendur, og hættu strax ef þú finnur fyrir óþægindum eða sársauka.


Meðgöngu-grunnæfingaplanið samanstendur af 6 mismunandi æfingum og er hugsað að tengja þig betur við grindarbotn of djúpvöðva kviðs á sama tíma og að halda þér gangandi á meðgöngunni. Fáðu kynningu á æfingaplanið hér.


Tæki/tól: Dýna, stóll, koddi


Um æfinguna: Þessi æfingar er í dýnu. Hún getur verið góð á hvaða tímapunkti meðgöngunnar sem er en sérstaklega góð ef þú vilt styrkja mjaðmasvæðið og auka meðvitund á því svæði sem á til að "glatast" á meðgöngunni út af breyttum þyngdarpunkti með vaxandi kúlu. Þessar æfingar munu geta hjálpað með tengingu við mjaðmasvæðið og kviðinn.

Hafðu í huga að hugsa út í heildina. Gerðu smá check-in í dýnu. Vertu með bogin hné og yljar í gólfi. Ýttu hökuna niður í átt að brjóstkassa, herðablöð niður, veltu mjöðmum aðeins í og frá dýnu. Andaðu út í rifbein og alveg niður í setbein og byrjaðu svo að fylgja æfingunni. 

Hver æfing er framkvæmd í 30 sek, þú fylgir mér í myndbandinu að neðan. Mikilvægt að hlusta vel á líkamann og ekki gera einhverja æfingu sem þú finnur til í, frekar að aðlaga henni eða sleppa.



30 sek hver æfing:

  1. Pelvic tilt í dýnu

  2. Hip rolls í dýnu

  3. Mjaðmalyfta halda uppi upp á tær og/eða lyfta fæti frá H/V til skiptis

  4. Mjaðmalyfta halda uppi upp á tær og/eða lyfta fæti frá  H/V til skiptis

  5. Clam H

  6. Adduction H

  7. Clam V

  8. Adduction V

  9. Donkey + fire hydrant H

  10. Donkey + fire hydrant V

  11. Hnébeygja

  12. Romanian

  13. Súmó dú

  14. Opna á mjaðmasvæðið

  15. Hafmeygjuteygja H og V til skiptis

  16. Hafmeygjuteygja H og V til skiptis

  17. Dúfan eða sitjandi mjaðmateygja H

  18. Dúfan eða sitjandi mjaðmateygja V

  19. Innan verð læri og teygja á síðu með hryggvindu H

  20. Innan verð læri og teygja á síðu með hryggvindu V


Láttu mig vita í comment hvernig þér fannst þessi æfing. Endilega deildu henni með öðrum svo hún geti nýst fleirum.

Comments


bottom of page